Gunnarsstaða-Gréta að tjá sig

Velkomin í Hvergiland

28.09.2009 21:43:14 / garbo

Haustið komið

Sumarið flaug með ofurhraða og nú er haustið langt komið, veturinn nálgast. Vinnan komin í fullan gang og Menntasetrið var formlega opnað í dag með pomp og pragt.
Er engan vegin að komast aftur í bloggstuð, þetta fésbókarhelvíti er alveg að drepa bloggið sem er frekar sorglegt, hef bloggað hér í fimm ár... en þetta hlýtur að koma.
Þangað til það gerist, bíðið spennt ;)
Gréta

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2009 11:51:03 / garbo

Sumarið er tíminn...

... og þá nenni ég ekki að blogga.
Byrjuð í vinnunni, lítur spennandi út, svo Kátir dagar, brúðkaup, brúðkaup, og mitt eigið brúðkaup;)
Gréta - sumarfrí frá bloggskrifum :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2009 22:33:03 / garbo

Jæja...

Langt liðið... og enginn tími til að blogga. Komin til Íslands með mastersgráðuna í rassvasanum ;) Þetta gekk allt upp, skilaði á réttum tíma, varði ritgerðina, útskrifaðist, hélt ræðuna, pakkaði búslóðinni og flutti heim. Við hjónakornin skelltum okkur aðeins til Stokkhólms, leigðum bíl og keyrðum þangað uppeftir. Sáum margt og merkilegt á leiðinni, meðal annars himnaríki fallegra hluta í Glerríkinu, glasriket.se. Stokkhólmur stóð alveg fyrir sínu, fyrir utan leiðinda rigningu... en það er nú bara smá rómans í því að hlaupa undan rigningunni, rennandi blaut inná einhvert kaffihús, fá sér einn bjór og nachos;) held það nú. Gistum svo  eina nótt á bakaleiðinni hjá frænku Jóns sem býr ein í gömlu húsi inní skógi, rétt við landamæri Noregs. Alveg magnað, sáum reyndar enga elgi en þeir eru oft þarna í kring og borða alltaf eplin úr garðinum hennar.
Heimferðin byrjaði nú ekki gáfulega en röð atvika leiddi til þess að við vorum komin á kastruplestarteina 45 mín áður en flugvélin fór í loftið, aldrei hlaupið svona hratt, með allan helvítis farangurinn!!! en við rétt mörðum það og gátum kastað mæðunni komin upp í vél, rennsveitt og fín... fáránlegt þegar þrjár mínútur verða að rúmum klukkutíma. Rétt misstum af strætó, næsti kom 9 mín síðar, þar af leiðandi rétt misstum við af lestinni sem við ætluðum að taka , réttara sagt lokuðu þeir á nefið á okkur, næsta lest eftir 20 mín, var svo frestað um 15 mín, lagði af stað 3 mín of seint, kom svo í ljós að vegna framkvæmda á teinunum þurftum við að skipta um lest í Malmö, sem þýddi aðrar 20-30 mín í bið... lestin renndi að Kastrup 12.05 og vélin fór 12.50 með okkur innanborðs, þvílíkt rugl. En, við erum agalega sátt með að vera komin heim, og vonandi kemst ég heim í fjörðinn minn fagra á laugardaginn, með allt dótið og get farið að flytja inn í risa húsið sem við fengum á leigu.
Ætlaði að setja inn agalega fínar myndir en eitthvað forritunarugl sem ekki virkar hér, seinna bara ;)
Gréta - komin heim

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2009 06:54:12 / garbo

Opna augu...

Einkadóttirin var skemmtilega hreinskilin í morgun. Ég gerði mitt besta til að setja upp andlitið þannig að ég fæli fólk ekki frá bókasafninu, var að reyna að meika yfir baugana sem voru fljótir að skella sér upp eftir svefnlitla nótt. Emilía fer eitthvað að velta fyrir sér snyrtiæði móðurinnar (sem er greinilega ekki vani) og spyr hverju sæti. Ég sagði að ég væri ekki að fara neitt heldur bara að fela baugana, og benti henni á dýrðina... hún horfir á mig "það er nú meira svona eins og augun séu að koma út" :cry: já fallega sagt en ekki get ég skammað hana fyrir að vera hreinskilin.
Dreymdi hins vegar svona líka skemmtilegan draum í nótt. Var með Fjallkonum í badminton og ekki í íþróttahúsinu, nei.... heldur útí sjó haha... vorum í sandgrynni í volgum sjó að spila, og Katrín var ekki í vandræðum með að fórna sér fyrir boltann splasssssssssh8) Ragnheiður væflaðist eitthvað með þarna kvartandi undan kulda og ég man að Vilborg dýfði sér alveg á bólakaf til að vera tilbúin fyrir hitann á vatninu ef hún færi alveg ofaní... bara fyndið, svona rugl fer mig að dreyma þegar álagið er mikið, ekki það að einhvern daginn verða Fjallkonur í volgum sjó einhvers staðar á sólarströnd með kokteilana tilbúna, sandala og ermalausan...8)
- 3 dagar þar til ég kem þessu í prentun (vonandi)
- 6 dagar í lokaskil
- 6 dagar þar til Jón Arnar kemur 8)
- 7 dagar þar til einkadóttirin verður 11 ára
- 8 dagar þar til ég ligg upp í rúmi heilan dag
- 9 dagar þar til ég byrja að pakka
- 14 dagar þar til vörnin á ritgerðinni fer fram
- 15 dagar í masters-útskrift

Skipulagið alveg á hreinu;)
Gréta - yfir og út

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2009 13:49:41 / garbo

Home alone á föstudegi

Já, alein heima alla helgina og það er bara fínt... nú er samt einhver föstudagur í mér þannig að mig langar meira í rauðvín heldur en að lesa mér til um and-feminíska fjölmiðlamenningu. Þó verður júróvision partý hérna hjá mér annað kvöld þannig að ég ætti að lifa þetta af .
Var að passa litla vinkonu mína áðan og kann svo ekkert á svona lítil börn lengur, hún gæti spilað með mig alveg fram og til baka, reyndi að telja mér trú um ýmislegt "mamma mín segir" og svo framvegis;) en þó mín sé orðin frekar stór þá man ég nú enn ýmis trix hehe... endaði samt á því að nota snudduna sem mútugjöf da da ra... gott þegar maður er bara að passa.
Leiðbeinandinn sendi langan lista af kommentum, samt góðum og réttlætanlegum þannig að núna vinn ég í því. Hún sagði að þetta væri "well done and interesting thesis" þannig að þetta er nú ekki alvitlaust, en það er gott að fá smá gagnrýni ´því á vissum tímapunkti er maður algjörlega geldur og sér ekki augljósar rangfærslur og það sem betur mætti fara. Mín helsta huggun núna er að eftir viku verð ég með prentuð og gormuð eintök af "mastersbókinni" í höndum, já... það verður svooooooo ljúft, þá get ég farið að huga að kössum, flutningum, útskriftarræðunni góðu og bara svona lífinu eftir skóla.
Gréta - skrifar eins og vindurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 11:57:28 / garbo

Lausir endar

Ákvað að vera heima í dag, klára ýmislegt sem hefur setið á hakanum og það er svona fínt. Sendi complete draft til leiðbeinandans seint á föstudagskvöld, meira svona föstudagsnótt og hef ekki litið á þetta síðan, stundum verður maður bara algjörlega að klippa sig frá þessu. Hitti hana á morgun og fæ þá umsögn um uppbyggingu, samhengi, rökfærslu og slíkt þannig að það er eins gott að henni líki verkið því annars er ég í djúpum sk.. Hef samt alveg viku til stefnu, rúmlega það en þetta verður að fara í prentun á fimmtudag eða föstudag í næstu viku8| en það hittir svo skemmtilega á að ég verð ein heima um helgina, Emilía mín að fara í skákferðina til Stokkhólms, þannig að helgin verður nýtt vel. Litla daman er þvílíkt spennt og planað alveg fram og tilbaka hvað á að taka með og hvað á að gera, þó dagskráin hjá þeim sé frekar þétt reyndar. En hún fer á föstudagsmorgun og kemur seint á sunnudagskvöld.... get alveg sagt að það sé kominn tími á smá pásu hjá okkur mæðgum þar sem hún fer hreinlega að gróa föst við mig, erum allt of mikið einar þannig að við verðum báðar fegnar að fá smá time-out, og eins þegar við komum heim á klakann;)
En lokaspretturinn er eftir, síðasta áhlaupið áður en gráðan er í höfn... þó jú, smá áhlaup er eftir þar sem ég á að halda ræðu á útskriftinni fyrir hönd þessara þriggja mastersbrauta sem útskrifast með mér, aldrei get ég haldið mér saman þegar leitað er efitr svona... eitthvað í blóðinu, ég sver það, þörf fyrir að standa í annan endann og messa yfir lýðnum hehe
Gréta - allt að hafast8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2009 12:27:28 / garbo

Einn góður

Veit ekki af hvort Raufarhöfn er skotmarkið eða bara alraðir foreldrar að reyna að fá börnin heim... fékk þennan senda í tölvupósti
Rétt fyrir hvítasunnu hringir roskinn maður á Raufarhöfn í son sinn í Reykjavík og segir
"mér finnst leiðinlegt að eyðileggja svona fyrir þér daginn, en ég verð að segja þér að við mamma þín erum að skilja.  Ég er búin að fá nóg eftir fjörtíu og fimm ömurleg ár."

"Pabbi hvað er eiginlega hlaupið í þig?" hrópar sonurinn í símann.
"Við þolum ekki lengur að sjá hvort annað" segir gamli maðurinn.  "Við erum komin með ógeð hvort á öðru.  Mér verður illt þegar ég tala um þetta svo ég bið þig að hringja í hana systur þína í Hafnarfirði og segja henni frá þessu."

Sonurinn alveg í rusli, hringir í systur sína sem tryllist "Þau fara ekkert að skilja á meðan ég fæ einhverju ráðið" öskrar hún í símann "láttu mig sjá um þetta."

Hún hringir samstundis norður á Raufarhöfn og hrópar á gamla manninn föður sinn.
"Láttu þér ekki detta það í hug að þið farið að skilja.  Og gerði enga vitleysu fyrr en ég er komin til ykkar.  Ég hringi í hann bróður minn og svo komum við bæði til ykkar annað kvöld.  
Og enga vitleysu - Heyrir þú það!"
Og með það leggur hún tólið á.


Gamli maðurinn leggur tólið á snýr sér að konu sinni og segir
"Jæja þau verða þá hjá okkur núna á hvítasunnunni.  Hvað getum við eiginlega sagt þeim svo þau komi til okkar á jólunum?"

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 08:48:19 / garbo

Talið niður...

Það styttist í skil á ritgerðinni og stressið að taka sér fastan sess. Þarf að koma henni í prentun svona 20 maí og skila útprentuðum eintökum til leiðbeinanda, prófdómara og eins nemanda fyrir 25 maí. Er sest niður á Studiecenter núna og hef hugsað mér að sitja sem fastast hér næstu tvær vikurnar. Emilía mín kann að elda sér grjónagraut, hita upp tilbúna rétti og hlýtur að redda sér sjálf að mestu;)
Helgin var góð og við Helga stóðum okkur vonum framar í vitleysisgangi, orðum það ekkert frekar, í gær var síðan eins árs afmæli hjá Nóel og Brynjari Breka, alltaf gott að komast í smá kökur8)
Best að sökkva sér í námsefnið ef þetta á að klárast á réttum tíma
Gréta - læri læri tækifæri

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2009 08:55:28 / garbo

Skál í boðinu

Það er Valborgsmassafton í dag, sem þýðir að sænsk ungmenni eru full í ALLAN DAG !!! og með partý hér í öllum görðum, byrjuð á slaginu 8. Var í eitt augnablik ekki alveg að átta mig á þessu í morgun, á leið í ræktina og nokkrir gaurar standandi hér fyrir utan, búnir að opna bauk og með fulla poka af bjór, bakpoka og útilegugræjur... greinilega að bíða eftir einhverju til að fara í partý. Mig rekur ekki minni í að hafa byrjað svona snemma, einu sinni man ég eftir því í veðramótaferð fyrir ja, svona 9 árum að hafa vaknað við tsssss hljóðið þegar Árni opnaði fyrsta baukinn, meira svona afréttarann eða eitthvað.... alveg óheyrilega snemma en held ég hafi aldrei náð þessu. Þegar þeir eru síðan búnir að sitja í garðpartýjum heima hjá sér þá er haldið í almenningsgarðana, sem eru fullir af fólki i allan dag og fram á kvöld... þetta er svona eins og þeirra verslunarmannahelgi, enda er veðrið geggjað þessa dagana, sól og um 23 stiga hiti.
Afskaplega erfitt að læra þegar sólin bókstaflega kallar á mann en það er víst ekkert val.
Hef hreinlega ekkert merkilegt að segja þessa dagana
Gréta - sem fer alveg að panta sér far heim ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 09:13:10 / garbo

Mánudagur

Góð helgi að baki og ný vika hafin með ákaflega fögrum fyrirheitum um ræktina og ritgerðarskrif. Hér á kjammanum var afmæli á laugardaginn, Raggi var 35 ára og afmælin hér eru alveg mögnuð, það get ég svarið. Kynt upp í grillunum svona um fjögur, fimm, setið í sólinni með bjór og spjallað, börnin hlaupandi út um allt, barnavagnar þvers og kruss um lóðina, eintóm gleði...;) síðan er grillað fyrir börnin, gefið á línuna, allir mæta sjálfir með kjöt en gestfjafinn er með sósur og meðlæti, og bjór... eftir því sem líður á kvöldið týnist alltaf einhverjir heim með börnin, lopapeysurnar birtast og gítarleikararnir fara að taka lagið, kyrjuð eru íslensk lög af miklum móð svoleiðis að enginn skilur neitt í neinu í nágrenninu. Snilldin ein alveg hreint og í þetta sinn var bjórkælirinn flott útfærður, einfaldlega nokkrar grindur af flöskubjór í fullu baðkeri af köldu vatni, þannig að það er hægt að skila af sér og ná í meiri bjór í sömu ferð hahahahaha. Set myndir af þessu inná fésið fljótlega.
Á föstudaginn lét ég draum rætast, lengi búin að langa en aldrei látið verða af því.. að kaupa mér overlock saumavél, já mínir draumar eru spennandi! Búin að kaupa brúðarklæði og nú skal saumað af miklum móð þegar ritgerðarskrifin eru lögð til hliðar. Það er svooooo mikið sem ég á eftir ógert áður en ég flyt heim en einhvern veginn hefst þetta allt, verð að treysta því. Aðal hausverkurinn núna er að flytja heim þar sem það kostar aleiguna að flytja gám, spurning um aðra Brady bunch ferð í Norrænu, kemur í ljós
Best að læra eitthvað, mætt á Studiecenter og sit her sem fastast í dag, og alla vikuna væntanlega.
Gréta - læri læri tækifæri

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 19:21:58 / garbo

Ja hérna hér...

Einkadóttirn tilkynnti mér að hún væri að fara í FF partý á morgun. "ha, FF hvað er það" ööö mamma, veistu ekki hvað FF partý er "ööö nei" ... hún horfir á mig hálfgerðum vorkunnaraugum þar sem ég er svona hallærisleg... það er Foreldra Frítt partý!!! já ok, svoleiðis, hmmmmmm! ef hún væri ekki 10 ára þá myndi ég væntanlega hafa áhyggjur en ætli það sé ekki aðeins of snemmt;)
Ég er alveg að andast úr leiðindum í þessum rannsóknargögnum, fletta dagblöðum á netinu, finna ljósmyndir af ráðherrum, klippa/líma i skjal döööööööööööööö, hrikalega tímafrekt og leiðinlegt... en ætti að klára þetta á morgun og þá get ég farið að greina þetta almennilega.
Helgin lítur vel út, annað kvöld ætla George og Christine að koma og grilla með mér, ætlum að hafa það hyggeligt í sólinni með grill og hvítvín. Síðan er afmæli hér á kjammanum á morgun sem þýðir annað grill og meira vín... í hófi þó þar sem ég þarf að nota helgina til að læra líka, nú styttist óðfluga í skil og stressið fer að setjast að.
Við Helga erum alveg að massa ræktina og bókasafnið þessa dagana, ég ætla nú ekki að birta mynd af okkur í ræktinni... en eina af bókasafninu, eða réttara sagt í pásu fyrir utan bókasafnið ;)
 já svona erum við sætar
Gréta - klippa/líma/klippa/líma

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 07:48:38 / garbo

Tveir mánuðir eftir af Svíþjóðardvöl

Já, það styttist alveg óhugnalega hratt í flutninga, nú þarf bara að reyna að púsla þessu saman því það kostar víst augun úr að flytja þessa dagana á milli landa. Páskafríið var náttúrulega bara notalegt en nú fer ég alveg að hrökkva í lærigírinn aftur, svona almennilega allavega þar sem Jón Arnar ætlar að yfirgefa okkur á morgun :cry: en það er nú stutt þangað til hann kemur aftur, þannig séð miðað við hvað tíminn flýgur hratt.
Sólin er loksins búin að samþykkja vorið og hér er búið að vera yndilegt veður, ég sólbrann reyndar á nefinu í gær sem var ekki eins gott... það er gallinn við að hafa svona stórt og myndarlegt nef tíhí. Ónæmiskerfið mitt er samt týnt einhvers staðar held ég, því ég er enn einu sinni orðin stífluð af kvefi, hélt að kvefpest og magapest væru nóg í einum mánuði en nei... aftur kvef þá bara:$ Held það sé verið að segja mér eitthvað, sænskir kvefvírusar ætla að gera út af við mig ef ég fer ekki og ég gef eftir, yfirgef landið fljótlega;)
Ritgerðarsmíðin gengur svona ágætlega en heilmikil vinna eftir, er að fara á midtermseminar á morgun með kennara og nemendum, þá fæ ég góð komment og hugleiðingar um meistarastykkið til að vinna út frá, stundum verður maður alveg geldur og sjónlaus á eigin vinnu, þá er svo gott að fá fleiri álit "betur sjá augu en auga".
Fór í gær að kjósa, jebb, sinna lýðræðislegum skyldum og rétti mínum8) og bíð spennt eftir kosningum næstu helgi, stefnir í eitthvað kenderí hérna á kjammanum þar sem það er afmæli og læti, spurning um að taka svo létta kosningavöku.
Sumarið lítur vel út og verður frekar annasamt. Ég byrja í nýju vinnunni minni 1 júlí, bíð spennt að vita hver verður að vinna þarna með mér fyrir Laugaskóla... svo eru Kátir dagar helgina 16-19 júlí, ég er í nefndinni enda svo duglega að finna mér eitthvað að gera8) og hvað gerist eftir það... viti menn.... þá næ ég brúðkaupum fjórar helgar í röð, þar af er reyndar eitt mitt eigið en ég er greinilega á rétta aldrinum því allar eru þessar vinkonur mínar, líkt og ég, fæddar árið 1982. Þannig að í lok ágúst verð ég líklega dauðfegin að vera ekki að flytja eitthvað eða fara, heldur bara búin að hola mér niður einhvers staðar, þ.e. ef við verðum ekki á vonarvöl með húsnæði svona framanaf en það hlýtur að leysast einhvern veginn.
Einn góður í lokin, eitthvað vorum við skötuhjú að ræða þessa sumardagskrá og Jón Arnar var eitthvað að tala um hvenær hann ætti eiginlega að vinna, þar sem hann tekur gott frí í byrjun sumars til að flytja okkur mæðgur heim... ég blikkaði hann og sagði honum að það væri allt í lagi, hann hefði ekki skyldumætingu í nema eitt af þessum brúðkaupum ... hann eitthvað svona, já er það hjá Arnþrúði.... NEI Jón Arnar, þitt eigið !!! hehe... en hann tók það nú svo sem sjálfgefið þessi elska að mæta þangað og fannst þetta eitthvað ósanngjörn spurning;)
Sunnudagur og við mæðgur ætum eitthvað að stjana við Reyðfirðinginn okkar þar sem hann fer á morgun og hann á afmæli í vikunni...
Gréta - sunnudagar til sælu:haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 22:34:08 / garbo

Skárra en ekki neitt :)

Helgin var náttúrulega bara dásamleg, virkilega afslappandi að rífa sig aðeins út úr þessu venjubundna. Fyrir utan reyndar kvef og aðrar kveisur sem herja á fjölskylduna, þá höfðum við það gott, étið, sofið , spilað og étið meira;)

Ströndin þarna er náttúrulega bara æðisleg þó það hafi verið alveg peysuveður, örugglega geggjuð á sumrin.

Við mæðgur svona fínar við strandvarðahringinn, vantaði bara Hasselhoffinn 8)

Emilía litla módel...

Er svo búin að læra síðan ég kom heim, og engjast um í magapínu jeyyyy... en á morgun er stefnt á Tívolí í Köben. Þar hittum við fyrir Andreu mína og Helenu mömmu hennar, ætlum að hrista okkur aðeins í tækjunum, eða kannski ekki ég svona rétt á meðan maginn er á hvolfi hehe... en litlu dömurnar láta ekkert svoleiðis á sig fá. Síðan skal slappað af, étið og kannski lært smá um páskahelgina. Styttist í skil á first draft af þessari blessuðu ritgerð en ég er nú bara ágætlega stödd held ég...
Yfir og út, hafið það nú gott um páskana öllsömul
Gréta Bergrún - sem fær sko risapáskaegg frá Reyðfirðingnum sínum:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.04.2009 21:51:54 / garbo

Hætt að væla...

... og farin í sumarbústað, eða svona nánast;) förum upp úr hádegi á morgun og það verður bara snilld. Spil, póker, heitur pottur, grill og gaman... þó ég sé ekki alveg viss um að maður kunni enn að vera tölvulaus heila fjóra daga, sjáum hvernig það gengur. Fyrir þá sem heima sitja, á Fróni það er að segja, þá er gaman að segja frá því að í dag var sól og sumarylur hér í Lundi, ég var bara á bolnum í bænum í dag, með úlpuna með en samt, fólk farið að liggja í grasinu og sóla sig í pásum, þá er sumarið að koma
Gréta - helgarfrí:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 11:29:02 / garbo

...

Ég er veik !!! og fyrir utan Katrínu systur þá held ég að enginn verði jafn mikill ræfill í veikingum hehe. Jón greyið þurfti að fara framúr í nótt til að sjóða handa mér hunangsvatn og það er náttúrulega bara yndilsegt að hann skuli vera kominn svona passlega til að hjúkra okkur því svo um 6 í morgun hentist ég upp við ófögur hljóð, Emilía mín með gubbupest... já , pestarbæli í dag en ekki lengur því það þarf að gera svo margt á morgun áður en haldið verður af stað í helgarferð, vá hvað ég hlakka til að komast úr bænum, hef bókstaflega ekki farið út úr lundi síðan ég fór til Íslands í febrúar, jú, tvisvar í stuttar ferðir til Malmö.
Hef ekkert merkilegt að segja, bara að reyna að fá einhvern til að vorkenna mér;)
Gréta - lasarus

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 42
Heimsóknir
Í dag:  34  Alls: 134805